Nú er sama liðið og réðst inn í sjálft Alþingishúsið með ofbeldi tekið að beita sér gegn batnandi ástandi.
Vitað er að ritstjóra Moggans er ætlað að verja hagsmuni. Hann telur sig eflaust standa sig í stykkinu. Í dag skrifar þvílíkt og annað eins að erfitt er að sjá að hann verði nokkrum af gagni. Ekki skjólstæðingum sínum, ekki blaðinu og alls ekki sjálfum sér.
Hann ætlar fólki svo ótrúlega hluti að erfitt er að orða það sem hann skrifar svo best að vitna beint til skrifa hans sem birtast í Mogganum í dag.
„Digrir sjóðir stéttarfélagsins Eflingar, sem fámenn klíka hefur sölsað undir sig, hafa verið óspart notaðir til að halda uppi áróðri og ýta undir ólgu í þjóðfélaginu. Þetta er í samræmi við grundvallarsjónarmið klíkunnar um að bylta „auðvaldskerfinu“ og taka upp annað þrátt fyrir reynsluna af því kerfi sem taka skal við.“
Þetta er úr Staksteinum.
Áfram með smjörið:
„Nú er sama liðið og réðst inn í sjálft Alþingishúsið með ofbeldi tekið að beita sér gegn batnandi ástandi á Íslandi. Það ætlar sér að knýja samdrátt í kaupmætti sem hækkað hafði meira en í annan tíma.“
Þetta er úr leiðara dagsins.
Von er að spurt sé. Er ritstjórinn ekki með öllum mjalla? Þvílíkt og annað eins. Ekki er hægt að trúa að sá sem skrifaði þetta trúi eigin orðum. Skot hans fara það duglega yfir markið.