Ég skora á Katrínu að stíga fram og verja þá sem verst standa án tafar.
„Í mörg ár hefur örorkulífeyrir verið á pari við atvinnuleysisbætur en frá og með 1. janúar sl. munar rúmum 32 þúsund kr. á mánaðargreiðslum. Við hjá Öryrkjabandalaginu höfum þráspurt stjórnvöld hverju þetta sætir en fáum engin skýr svör og menn yppta öxlum og segja að þetta hafi bara gerst, eins og stjórnvöld hafi ekki komið nálægt breytingunum.“
Þetta skrifar varaformaður Öryrkjabandalsins, Halldór Sævar Guðbergsson.
Er nema von að öryrkjum sé ekki skemmt undir þeirri ógnarstjórn sem nú situr að völdum. Halldór Sævar biður ríkisstjórnina um að sýna öryrkjum sanngirni og virðingu. Fjármálaráðherra og nokkrir þingmenn hafa lagst svo segja ranglega að öryrkjar hafi hafnað afnámi krónu á móti krónuskerðingunni. Sem er ámóta og að drukknandi maður myndi hafna björgunarhring.
Aftur yfir til Halldórs Sævars:
„Stjórnvöld geta ekki kennt forsvarsmönnum Öryrkjabandalagsins um þá kjaragliðnun sem lífeyrisþegar hafa þurft að taka á sig síðastliðinn áratug. Stjórnmálamenn og -konur bera alla ábyrgð á slæmum kjörum öryrkja og það er löngu orðið tímabært að losa fatlað og veikt fólk út úr fátæktargildrum t.d. með því að losa okkur undan krónu-á-móti-krónu-skerðingunni.
Svona skerðingar þekkjast ekki í nágrannalöndum okkar og allir stjórnmálaflokkar á Alþingi hafa sagt að það eigi að afnema þetta óréttlæti strax en ekkert gerist. Nýjasta útspil ríkisstjórnarinnar er að hækka atvinnuleysisbætur um rúmar 42 þúsund kr. og skilja aldraða og öryrkja eftir með einungis 3,6% hækkun sem étin verður upp í verðbólgu.
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur er úti á túni við að draga úr fátækt því fátækt hefur þvert á móti aukist í íslensku samfélagi. Ég skora á Katrínu að stíga fram og verja þá sem verst standa án tafar. Fyrst er að viðurkenna vandann og síðan að bregðast við honum með ábyrgum hætti.“
Eftir orð varaformanns Öryrkjabandalagsins sitja eftir tvær spurningar; er ríkisstjórnin vond eða er hún ill?