Er landinu vel stýrt?
En hann meinti örygglega að hann hefur stóraukið fjárframlög til stjórnmálaflokka.
Guðmundur Gunnarsson skrifar:
Það var einhver í útvarpinu um daginn að hrósa sér fyrir hversu vel hann og flokkur hans hefði stýrt landinu undanfarin ár. Vegakerfið í rúst, heilbrigðiskerfið getur ekki sinnt sínum skyldum, gríðarlegur skortur á hjúkrunarrými fyrir aldraða, menntakerfið skortir mikla fjármuni, verkalýðshreyfingin með kröfur um hækkun launa svo fólk á lægstu töxtunum geti dregið fram lífið.
En hann meinti örugglega að hann hefur stóraukið fjárframlög til stjórnmálaflokka og tvöföldun aðstoðaranna ráðherra, hækkað laun sín og nánustu samstarfsmanna um 550 þús. kr. á mán., búið að endurnýja bílaflota ráðherra og til stendur að verja milljarði í aukið skrifstofuhúsnæði fyrir stjórnsýsluna.