„Hinn burðarflokkur íslenskra stjórnmála, Framsóknarflokkurinn, mældist aðeins með 8,8% fylgi og bætir þó við sig einu prósentustigi frá síðustu mælingu, sennilega eftir að hann tók afgerandi afstöðu í orkupakkamálinu.“ Þetta segir Davíð Oddsson í leiðara dagsins. Tilefnið er skoðanakönnun MMR um fylgi flokkanna og ríkisstjórnarinnar.
Ekki er víst að margt fólk taki undir með ritstjóra Moggans um að sanngjarnt sé að tala um Framsókn sem burðarflokk eins og staða flokksins er í dag. Það átti kannski einhvern tíma við, en varla núna.
Um eigin flokk skrifar Davíð:
„Sjálfstæðisflokkurinn mældist þannig með 19,8% fylgi sem einhvern tíma hefði þótt saga til næsta bæjar og jafnvel til bæjarins utan við hann.“
Hann finnur þó huggun í vondri stöðu og reynir að hafa gaman af: „Þar var reyndar enginn hástökkvari sem skar sig úr og virðist sú grein hafa verið sett til hliðar um hríð og einungis keppt í því hvaða flokkur gæti orðið hæstur í lágstökki.“
Svo er það ríkisstjórnin: „Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar mikið á milli kannana eða um 5,3 prósentustig og minnkar stuðningurinn þannig um 16%. Það er eftirtektarvert því ekki verður séð að ríkisstjórnin hafi fengist við erfið mál fram að þessu og eins fer fjarri að stjórnarandstaðan birtist þjóðinni sem heildstæður og sannfærandi kostur.“