Greinar

Er ekki að reyna að vera fyndinn, þetta er svona

By Gunnar Smári Egilsson

September 02, 2020

Gunnar Smári skrifar:

Fyrir utan atvinnuleysistryggingar, sem verkalýðurinn barðist fyrir á síðustu öld, þá hefur nú lítið komið út úr efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar hingað til, fæst af þeim orðið í líkingu við það sem kynnt var. Það breytir því varla miklu þótt ráðherrarnir skelli í einn fundinn til og kynni eitthvað sem síðan geigar. Ég tek fram að ég er ekki að reyna að vera fyndinn, þetta er svona.