Það er hreint magnað að lesa hluta leiðara Moggans í dag. Þar nokkru púðri eytt í Dag borgarstjóra og meirihlutann í borginni. Það hefur allt verið sagt áður, sumt að brýnni þörf. Annað er tuð. En niðurlagið er hreint magnað. Þar er veitt innsýn í huga Davíðs Oddssonar. Staðfesta hans gegn láglaunakonunum sem vinna hjá borginni er hreint ótrúleg.
„Núverandi meirihluti í Reykjavík hefur unnið mikið tjón með margvíslegum axarsköftum og einstrengingslegri og jafnvel ofstækisfullri stefnu sinni í ótal málum. Það tjón sem hann kann nú að vera að vinna gagnvart stöðunni á vinnumarkaði og þar með gagnvart atvinnustigi í landinu og velmegun alls almennings er þó líklega mun stærra og gæti haft enn alvarlegri afleiðingar til lengri tíma litið. Vonandi tekur borgarstjóri eigin orð um forystuleysi til sín og útskýrir fyrir öðrum borgarfulltrúum meirihlutans hvaða afleiðingar það muni hafa ef Reykjavíkurborg stendur ekki í lappirnar gagnvart kröfum um að vinnumarkaðurinn verði settur í uppnám í því viðsjárverða efnahagsástandi sem nú er uppi.“
Þarna er fjallað um konurnar og Eflingu sem þær stundi hrein og klár hryðjuverk. Að áframhaldandi byggð í landinu sé í hættu. Að þjóðin standi frammi fyrir vá sem verða að stöðva. Er Davíð alvara þegar hann skrifar svona? Ef svo er þá er alvara Davíðs sú fúlasta sem heyrst hefur lengi.
-sme