Enn er fólk að deyja úr Covid 19 á Íslandi: Tvö andlát um helgina
Þótt allar samkomubannanir og takmarkanir vegna Covid 19 séu ekki lengur í gildi er veiran enn að taka fólk til sín; tveir einstaklingar létust um helgina vegna Covid-19.
Staðfestir Már Kristjánsson yfirlæknir smitsjúkdómadeildar Landspítalans að fólk sé að veikjast mjög hastarlega af veirunni, líka einstaklingar sem eru bólusettir.
Deginum ljósara er að faraldurinn er í talsvert miklum vexti, en samkvæmt tölulegum upplýsingum á covid.is er nýgengi, innanlandssmita 618,2.
Læknirinn Már býst ekki við því að samkomutakmarkanir verði hertar á nýjan leik á Íslandi þrátt fyrir stöðuna í dag.
Veiran hefur sótt í sig veðrið að undanförnu eins og greint var frá fyrir helgi og eru um 150 til 200 manns að greinast með smit á hverjum degi; virðist eitthvað vera um alvarleg veikindi; fyrir helgi lágu þrír á gjörgæsludeild.
Már er á því í ljósi þessarar stöðu sé enn mikil hvatning fyrir fólk að láta bólusetja sih; staðan er nú þannig að 77% Íslendinga eru fullbólusettir.
Alls eru nú 34 sjúklingar á spítala með Covid, á legudeildum og bráðamóttöku, dreifðir um heilar níu starfsstöðvar Landspítala.