Engar breytingar eru fram undan á Miðjunni. Framsóknarmenn leggja mikið á okkur. Þar sem þeir segja einatt að framtíðin ráðist á Miðjunni. (Veit að ég er með útúrsnúning, en mér finnst þetta bara svo skemmtilegt).
Upphaflega var lagt af stað með vef sem átti að standa fyrir; stjórnmál, mannlíf og efnahagsmál. Skammstafað; sme. Ég er eini eigandi Miðjunnar. Ég óska öllum lesendum gleðilegs árs og þakka fyrir samfylgdina hingað til. Á níu árum hef ég birt yfir fimmtán þúsund færslur, eða um fimm færslur að meðaltali dag hvern.
Með góðri kveðju, Sigurjón Magnús Egilsson.
Þú gætir haft áhuga á þessum