Elli- og örorkulífeyrir verði 368.000
Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur lagt fram frumvarp þar sem gert er ráð fyrir að elli- og örorkulífeyrir almannatrygginga fylgi þróun lágmarkslauna í samræmi við kjarasamninga og verði 368 þús. kr. árið 2022.
- Lagt er til að upphæðin þróist með eftirfarandi hætti:
- 1. apríl 2019 317.000 kr. á mánuði.
- 1. apríl 2020 335.000 kr. á mánuði.
- 1. janúar 2021 351.000 kr. á mánuði.
- 1. janúar 2022 368.000 kr. á mánuði.
„Ljóst er að stór hópur aldraðra og öryrkja býr við fátækt. Tæplega fjórðungur öryrkja býr við skort á efnislegum gæðum samkvæmt nýjustu rannsóknum Hagstofu Íslands og eru öryrkjar sá hópur sem verst stendur þegar þátttakendur eru greindir eftir atvinnustöðu. Frá árinu 1998 hefur kjaragliðnun öryrkja numið 59,4% samkvæmt tölum sem unnar hafa verið fyrir málefnahóp Öryrkjabandalags Íslands um kjaramál,“ segir í greinargerðinni með frumvarpinu.
Þar segir einnig: „Staðan er nú þannig að þúsundir lífeyrisþega ná ekki viðmiðum um lágmarkslífeyri og fá þar af leiðandi sérstaka uppbót til framfærslu.“