Ekki hægt að ljúga þessu
Gunnar Smári skrifar: Það sem ríkisstjórnin kallar stuðning til húsnæðismála, þ.e. húsnæðisbætur, stofnframlag til byggingar almennra íbúða og vaxtabætur, hækkar um 900 m.kr. sem er aðeins 3,6% frá fyrra ári.
Viðbrögð ríkisstjórnarinnar við húsnæðiskreppunni og mikið vaxandi húsnæðiskostnaði almennings á liðnum árum er að láta framlög til þessa rétt rúmlega halda í við almennt verðlag en vera langt undir hækkun húsnæðiskostnaðar eða í takt við gríðarlega þörf láglaunafólks og fólks með lægri meðaltekjur fyrir ódýrt og öruggt húsnæði.
Á sama tíma og fólkið sem hrekst um á húsnæðismarkaði fær 3,6% hækkun hækkar ríkisstjórnin framlag til aðstoðarmanna ráðherra um 32%. Það væri ekki hægt að ljúga þessu.