Hermann Guðmundsson forstjóri skrifaði:
Örsaga dagsins:
Maður er beðinn um að koma á Landspítalann snemma í morgun til að láta gera að handarmeini sem hrjáði manninn.
Þessi maður þurfti að aka í 2 tíma enda ekki búsettur í Borginni. Hann mætir á réttum tíma og er beðinn um að bíða.
Þú gætir haft áhuga á þessum
Læknirinn sem átti að gera aðgerðina kom aldrei, eftir 3ja tíma bið var sagt að það væri engin skurðstofa laus og hann mætti bara fara og koma aftur síðar í vikunni.
Sem sagt, heill vinnudagur er farinn til spillis, annar vinnudagur mun fara til spillis síðar í vikunni og aðrir 4 tímar í akstur.
Svona rekið einkafyrirtæki yrði fljótlega gjaldþrota.