Efla varnir í flugvallarmálinu
- algjörlega ófullnægjandi vinna Rögnunefndar, segir samgönguráðherrann.
Þingmenn, ráðherra og oddviti Sjálfsæðisflokksins í Reykjavík, vel studdir af Morgunblaðinu, halda áfram tilraunum til að halda flugvellinum í Vatnsmýrinni.
Þingmaðurinn Njáll Friðbert Traustason, sem á sæti í stjórnsskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis, vill að atburðarrás síðustu ára verði rannsökuð.
Í Moorgunblaðinu í dag er ríkulega fjallað um varnarskipan kjörinna fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Þar segir Halldór Halldórsson oddviti borgarstjórnarflokksins:
„Ég mun óska eftir því að sambærileg tímalína verði unnin af hálfu borgarinnar og málið allt skoðað á sama hátt og nefndin bað Ríkisendurskoðanda að gera. Það er mikilvægt að eiga þetta samandregið af hálfu borgarinnar. Það þarf að yfirfara athafnir borgarinnar og hvort eitthvað sé ekki samkvæmt reglum eða heimildum. Það er mjög mikilvægt að fá þetta fram. Það eru enda að minnsta kosti tveir málsaðilar í þessu leikriti.“
Jón Gunnarsson samgönguráðherra er heldur ekki af baki dottinn:
„Við verðum að ná einhverri mál efnalegri umræðu um þessi mál. Það var vitnað mikið í vinnu Rögnunefndarinnar. Ég tel að sú vinna hafi verið algerlega ófullnægjandi, samanber þær upplýsingar sem hafa verið að koma fram um þann valkost sem nefndin taldi vænlegastan til að þróa, Hvassahraun, að þar sé mögulega vatnsupptökusvæði Suðurnesja,“ segir Jón og bætir því við að eins hafi nefndin vanreifað öryggishlutverk vallarins,“ segir í Morgunblaðinu í dag.
Staksteinar eru síðan helgaðir baráttu þeirra allra og þar er rannsóknum fagnað að heilum hug.