- Advertisement -

Dýr myndi Eyjólfur allur

Kannski Alþingi muni höfða mál gegn þessum spakvitringi fyrir landsdómi ef hann stendur við sín stóru orð.

JSG.

Jón Steinar Gunnlaugsson skrifaði:

Það er birt kostuleg frétt í Morgunblaðinu í dag, laugardag. Einn af nýskipuðum ráðherrum í ríkisstjórninni, Eyjólfur Ármannsson, segist telja að lög um bókun 35, sem til stendur að setja, brjóti í bága við stjórnarskrána. Hann hefur reyndar haldið þessu fram af miklum þunga fyrr, en það var áður en hann varð ráðherra. Kveðst ráðherrann nú geta hugsað sér að greiða frumvarpi um þetta atkvæði á Alþingi; a.m.k. muni hann sitja hjá við afgreiðslu þess, þó að hann telji engan vafa leika á því að hér verði brotið gegn stjórnarskránni!

Það er varla að maður geti trúað þessu. Er málum nú svo komið hér á landi að ráðherrar í ríkisstjórn Íslands séu tilbúnir að styðja lagasetningu á Alþingi, sem þeir segjast telja að fari í bága við stjórnarskrána? Mér er nær að halda að aðrir eins þverbrestir hafi varla sést hjá íslenskum stjórnmálamönnum fyrr, allavega ekki hjá ráðherrum í ríkisstjórninni. Um þá gilda lög um ráðherraábyrgð nr. 4/1963 og er enginn vafi á að þeir bera skyldu til að virða stjárnarskrána í störfum sínum, hvort sem málefni heyrir undir ráðuneyti þeirra eða starfsbræðra þeirra í ríkisstjórninni. Kannski Alþingi muni höfða mál gegn þessum spakvitringi fyrir landsdómi ef hann stendur við sín stóru orð.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: