Það er ekkert skemmtiefni hvernig komið er fyrir fjárhag sveitarfélaga. Reykjavík er stærst og skuldar alltof mikið. Önnur sveitarfélög bera sig líka illa. Staða Reykjavíkur er ekki öllum vond. Það hlakkar í Mogganum. Gagnrýni Moggans á eftir að harðna. Ekki síst fyrir þær sakir að meirihlutinn í borgarstjórn hefur afráðið að reyna að selja Perluna. Ritstjóri Moggans réði því að Perlan var byggð. Hún er nokkurs konar minnismerki um Davíð Oddsson borgarstjóra.
Í leiðara dagsins er bág staða borgarinnar til umfjöllunar. Leiðarinn endar svona:
„Borgin hefur ekki efni á að reka Strætó í núverandi mynd, vagnarnir komnir til ára sinna og ferðir strjálar. Hins vegar er gert ráð fyrir að hægt verði að koma á laggirnar og reka túrbókerfi þar sem boðið verður upp á ferðir á fimm mínútna fresti á mestu annatímum. Í vikunni var greint frá því að áætlanir um kostnað við samgöngusáttmálann hefðu tvöfaldast frá því sem var í upphafi og væri hann nú metinn á 300 milljarða. Þar af muni borgarlínan kosta 126 milljarða. Hvaðan eiga peningarnir að koma í það ævintýri? Og hvaðan eiga peningarnir að koma þegar kostnaðurinn fer fram úr áætlun því að það er eins áreiðanlegt og að sólin sest og rís á ný? Eina spurningin er hversu mikil framúrkeyrslan verður. En þá er bara að vaxa út úr vandanum.“
-sme