Drífa Snædal forseti Alþýðusambandsins:
„Dagur vonbrigða í
dag þegar við fengum kynningu á skattatillögum stjórnvalda.
1. Skattalækkun upp allan stigann (enginn að kalla eftir
skattalækkun á hæstu tekjuhópana).
2. Sennilega frysting persónuafsláttar í nokkur ár
(raunlækkun persónuafsláttar).
3. Ekkert meira inn í barnabóta- og húsnæðiskerfin
en komið er (Fjármagn í barnabætur hafa ekki náð raungildi ársins 2010).
4. Enginn hátekjuskattur eða hækkun á
auðlindagjöldum og fjármagnstekjuskatti (Tekjuöflun engin).
5. Skattalækkun á þá hópa sem enn ná ekki endum
saman dugar varla fyrir einni ferð í Bónus og sú lækkun á að koma einhverntíman
á næstu þremur árum.
Niðurstaða: Þetta verður ekki til að liðka fyrir
kjarasamningum.“