Staksteinar dagsins bera skýr merki þess að Davíð hafi skrifað þá. Gæsalappir eru óspart notaðar og greinilega í hvaða tilgangi.
Kíkjum aðeins á þá.
„En þá datt einhverjum með ólund þann daginn í hug að halda „leiðtogafund á Íslandi.“ Hér er efast um leiðtogana sem koma hingað. Það er allt í lagi. Stundum er þjóðarleiðtogar kallaðir fyrirmenni í þessu sama blaði.“
Kannski á það bara við leiðtogar er á sama aldri og ritstjórinn.
Sem fyrr er ritstjóranum meinilla við RÚV og það fólk sem þar starfar:
„Þó sagði „fréttamaður“ „RÚV“ að fundurinn væri þýðingarmeiri en fundur Gorbasjevs og Reagans í Höfða!“
Þegar kemur að Degi B. Eggertssyni þarf greinilega ekki gæsalappir:
„Við höfum sólundað svakalega upp á síðkastið og Dagur B. ekki slegið slöku við er hann setti höfuðborgina á hausinn.“
Svo mörg voru þau orð.