- Advertisement -

Dónar og dusilmenni

Sigmundur Davíð á mynd sem fylgdi Facebookfærslu Oddnýjar.

Oddný Harðardóttir skrifar:

„Ef dónar og dusilmenni drekka sig fulla og tala með ruddalegum, klámfengnum og niðrandi hætti um samstarfskonur sínar en einnig fatlaða og samkynhneigða einstaklinga, eru viðbrögðin við því þá til að koma pólitísku höggi á einhvern sem tók þátt í leiknum? Eru sterk viðbrögð ekki eðlileg við slíku virðingarleysi og dónaskap?

Sigmundur Davíð tók þátt í „gleðskapnum“ á Klausturbar en telur að siðareglur og túlkun siðanefndar á þeim, snúist um að koma pólitísku höggi á hann sjálfan. Meint skotmark segir hann og skotið geigaði! Ja sveiattan!

Þú gætir haft áhuga á þessum

Sumir þingmenn eru alltaf kurteisir og koma ávallt fram við alla af virðingu og gæta einnig að virðingu Alþingis. Aðrir gera það ekki. 

Við í Samfylkingunni viljum siðareglur fyrir alþingismenn. Við viljum að á vegum Alþingis starfi siðanefnd. Við viljum hins vegar ekki að kjörnir fulltrúar forsætisnefndar snúi niðurstöðum siðanefndar á hvolf. Þess vegna er rétt af forsætisnefnd að staðfesta niðurstöður siðanefndar jafnvel þó þær kunni að vera umdeildar.

Alþingi þarf að fara yfir allt ferlið; siðareglurnar, siðanefnd og aðkomu forsætisnefndar (sem ég tel að hvergi eigi að koma nálægt). Best væri ef við fengjum aðstoð frá ÖSE (Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu) sem hefur aðstoðað þjóðþing víða um siðareglur og starfsemi síðarnefnda.

Sumir þingmenn eru alltaf kurteisir og koma ávallt fram við alla af virðingu og gæta einnig að virðingu Alþingis. Aðrir gera það ekki. 

Við megum ekki gefast upp þó að frumraunir kunni að vera umdeildar, því siðareglur og niðurstöður síðarnefnda setja viðmið og veita þingmönnum nauðsynlegt aðhald.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: