DO: „Það svæði er allt útbíað í sprungum“
![](https://www.midjan.is/wp-content/uploads/2024/07/Screen-Shot-2024-07-03-at-12.11.47.png)
„Það verður ekki byggt á Rauðavatnssvæðinu næstu áratugina.“
DAVÍÐ ODDSSON.
Fortíðin
„Skipulagsmál eða Rauðavatnsmálið var eitt stærsta kosningamál sjálfstæðismanna í síðustu borgarstjórnarkosningum. Var það pólitísk
brella, eru nokkrar „hættulegar” sprungur á því svæði, verður ekki byggt þar þó síðar verði? “
Þannig spurði Þórunn Gestsdóttir Davíð Oddsson þáverandi borgarstjóra. Nú er Davíð ritstjóri Moggans og aðsetur blaðsins er einmitt á þessu meinta sprungusvæði.
Hér er svar borgarstjórans fyrrverandi:
„Það svæði er allt útbíað í sprungum. Landsvirkjun ætlaði að byggja þar stjórnstöð á síðasta ári en hætti við. Við eigum ekki endalaust land en það verður ekki byggt á Rauðavatnssvæðinu næstu áratugina.“
Nú hefur verið byggt fast að Rauðavatni. Þar má nefna höfuðstöðvar Moggans svo ekki sé talað um Norðlingaholtið.