Lilja þykir nú, sem fyrr, líklegust allra til að verða bankastjóri.
Nýjasta frétt úr Djúpríkinu: Til stendur að skipa fjóra bankastjóra í Seðlabankann. Í stað þess eina sem nú situr. Og lætur brátt af störfum.
Af hverju fjóra? Það eru bara þrír flokkar í ríkisstjórninni.
Tilgáturnar eru þessar:
1. Djúpríkið vill gera klárt fyrir Miðflokkinn, þurfi að sjanghæa hann í ríkisstjórnina.
2. Djúpríkið vill beygja sig niður í tær og hleypa fulltrúa úr Borgartúni 35 í bankastjórastól.
Fyrir fjölflokka ríkisstjórnir er ótækt að hafa bara einn bankastjóra. Því á að redda málinu. Í eitt skipti fyrir öll.
En skal áréttað að Lilja Dögg Alfreðsdóttir er líklegust til að verða aðalbankastjórinn. Svo segja heimildir úr Djúpríkinu.
-sme