Stjórnmál / Næsti vetur verður kosningavetur. Harkan í stjórnmálunum mun aukast. Hratt og stígandi. Davíð Oddsson verður virkur þátttakandi. Hann er tveggja flokka maður. Sjálfstæðisflokks og Miðflokks. Kannski frekar Miðflokks. Hann er lítið fyrir Vinstri græn og „gluggaskrautið“ Katrínu Jakobsdóttur.
Davíð slær fastan takt í Mogganum í dag. Fer samt fáránlega krókaleið til að berja á Katrínu. Notar Björn sinn Bjarnason sem barefli. Sá hafði vitnað til að bókar um VG. Tilvitnunin er svona:
„Á fundi 13. apríl [2011] var, samkvæmt tillögu Katrínar Jakobsdóttur, ákveðið að fá vinnustaðasálfræðing til að aðstoða hópinn [þingflokk VG] við að bæta andrúmsloftið. En því var „tekið misvel í þingflokknum og óttaðist ég að viðkomandi hafi sjálfur þurft að leita sér aðstoðar eftir að hafa kynnst þingflokki VG,“ sagði Katrín Jakobsdóttir við bókarhöfund í maí 2018 (s. 232). Og enn hafði formaður VG þessi orð um ástandið: „Þetta líktist einna helst langri spennusenu úr Indiana Jonesmynd þar sem einn rúllandi steinninn á eftir öðrum sótti að manni“.
Þetta er bara byrjunin. Þrátt fyrir þjónkun Vinstri grænna við íhaldið verður engum hlíft. Skrímsladeild Valhallar er varla byrjuð. „KolaKata“ mun fá sinn skerf, þrátt fyrir allt og allt.