Davíð Oddsson, ritstjóri Moggans, tekur upp hanskann fyrir Vigdísi Hauksdóttur vegna átakanna sem hún á í innan ráðhússins.
„En það er ekkert faglegt eða vandað við það að embættismenn munnhöggvist við kjörna fulltrúa eða að embættismenn taki í raun ákvarðanir sem aðrir beri ábyrgð á. Kominn er tími til að kjörnir fulltrúar ræði þessa þróun og leggi í það minnsta mat á hvort ekki hefur verið gengið of langt í þá átt að færa völdin frá þeim til andlitslausra og ábyrgðarlausra embættismanna,“ segir meðal annars í leiðara Moggans í dag.