Að venju er ólund í leiðara Moggans. Samfylkingin liggur svo sem vel við höggi þegar staða borgarinnar er skoðuð. Himinhátt skuldafjall. Rétt eins og hjá ríkissjóði. Bjarni og Dagur eiga skuldasöfnunina sameiginlega.
Davíð sýnir innræti sitt glögglega í þessum hluta leiðarans:
„Kristrún Frostadóttir, nýbakaður forystumaður Samfylkingar, telur það sér helst til ágætis að hún hafi það umfram aðra í forystusveit Samfylkingar að hún sé sæmilega læs á fjármál. Og hafi reyndar sjálf haft gott upp úr sínu krafsi, ekki síður en formaður Blaðamannafélags Íslands og fréttamaður á „RÚV“! Kristrún formaður taldi sér óhætt að taka mark á margsigldum leiðtoga borgarstjórnar fjögurra flokka um margra ára gömul loforð sem hlyti að vera óhætt að treysta að hefðu loksins verið efnd. En „mikil er trú þín kona“, sagði skáldið forðum. Er Kristrún hafði klappað rækilega fyrir sér og Degi mátti hún sæta pínlegum leiðréttingum úr næsta bæ.“
Hvað erindi átti Sigríður Dögg Auðunsdóttir í þetta? Hún hefur svarað fyrir sig. Davíð kýs að virða ekki svar hennar. Það gat svo sem verið.