Davíð Oddsson skýtur miðlungsþungu höggi á forseta Alþingis í Staksteinum dagsins.
Davíð rifjar þar upp þekkt augnablik úr þingsögu Steingríms J. Sigfússonar, Davíð skrifar: „Og kæmi ráðherra ekki í sal gætu þeir öskrað út í nóttina og þingsalinn að sá ráðherra, sem ekki mætti og hlustaði á sömu ræðuna í 10. sinn, væri „drusla og gunga“ eins og SJS gerði svo smekklega í maí 2004.“
Alkunna er að Steingrímur á mikilli flækju í embætti vegna málþófs Miðflokksins.
Davíð: „Í fréttum segir að upplausnarástand sé á þingi vegna eftirspurnar eftir umræðu um orkupakka 3, en pökkunum 1 og 2 var lætt í gegn umræðulaust og það lúalag átti einnig að nota nú. Eftirfarandi er haft eftir Steingrími J. Sigfússyni, forseta þingsins: „Forseti vill nú upplýsa að þingfundur hefur staðið hér á Alþingi í réttan sólarhring og reyndar nokkrum mínútum betur.“
Hér áður voru næturfundir algengir en þó oftast reynt að beita þeim ekki gróflega gagnvart einu ákveðnu málefni.
Sé þingið komið út í ógöngur nú má leita til þingmanns með mesta þingreynslu og þess þingmanns sem hvað lengst hefur talað samtals í „málþófi“. Reynsluboltarnir tveir og forseti þings gætu fljótt komið með tillögu að lausn því þeir þrír eru einn og sami maðurinn. Gætu þeir gefið málþófsmönnum kost sem þeir gætu ekki hafnað: Þeir mættu hver og einn tala jafn lengi nú og sá sem lengst hefur talað á þingtíma sínum en ekki lengur.
Þá gæti komið í ljós að núverandi ræðumenn mættu tala vel fram í júlí, og lengur séu andsvör talin með. Þeir gætu einnig krafist þess að „viðkomandi ráðherra“ sæti öllum stundum yfir „málþófinu“.“