Leiðari
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur verið í skjóli fyrir drullukúlunum úr Hádegismóum. Allt frá því að hún myndaði fyrri ríkisstjórnina með Bjarna Benediktssyni formanni Sjálfstæðisflokksins.
Við munum flest hvað Davíð Oddsson kallaði Katrínu þegar hún tók við formennsku í VG af Steingrími J. Sigfússyni. Davíð hafði ekki miklar mætur á Katrínu og kallaði hana gluggaskraut Steingríms J.
Í leiðara dagsins í Mogganum í dag brýst fram ómæld afbrýðissemi í garð Katrínar. Að hún hafi náð fram gjaldfrjálsum skólamáltíðum.
Lesum: „Hvergi er það jafnaugljóst og í fyrirætlunum um „gjaldfrjálsar skólamáltíðir“ í grunnskólum. Er þó ekki vitað til þess að við samningaborðið hafi nokkur imprað á því. Hins vegar hafa Vinstri grænir lengi haft þetta að stefnumáli en hvorki haft árangur um það í héraði né á þingi. Og þá smyglar Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra því óumbeðin inn í skjóli kjarasamninga.“
Nú bregður svo við að Moggaritstjórinn mærir bæði Sólveigu Önnu og Villa Birgis án þess að nefna þau á nafn.
Meira um Moggann og Katrínu. Í leiðaranum segir um aðkomu Katrínar:
„Þau klækjastjórnmál eru ekki kostnaðarlaus fyrir skattgreiðendur í krónum og aurum talið, en verra er að þessi manngæska Vinstri grænna á annarra kostnað gengur beinlínis gegn markmiðum þessara kjarasamninga og gegn efnahagsstefnu ríkisstjórnar forsætisráðherra.
Eða ímyndar sér einhver annar að það hafi engin áhrif að ráðstöfunartekjur barnafólks með miðlungstekjur og yfir séu auknar um marga milljarða? Seðlabankinn og peningastefnunefnd hans geta tæplega litið öðruvísi á eða komist hjá því að grípa til sinna ráða.“