Hégóminn er fólki oft til vandræða. Svo er í Reykjavíkurbréfi Davíðs þessa helgina. Hann leggur á sig krók til að koma því að, að hann hafi í fórum sínum jólakort úr Hvíta húsinu. Vandræðalegt.
„Bréfritari á í fórum sínum á annan tug myndarlegra jólakorta sem hann fékk send úr Hvíta húsinu á meðan hann var forsætisráðherra. Á hverju þeirra stóð í smáu letri að kortið væri gert í 300.000 eintökum og (eftir því hver forsetinn var) að flokkur repúblikana eða demókrata hefði kostað útgáfuna! En hvernig leystu menn úr slíku stórmáli hér heima? Í tilviki og tíð fyrrnefnds þá var útbúið jólakort og sent út af forsætisráðuneytinu í nafni ráðherrans. Sjálfstæðisflokkurinn gaf svo jafnframt út kort í nafni formannsins sem fór til þeirra sem það átti við. Vel má vera að í einhverjum tilvikum hafi borist tvö kort í sama hús, en kvörtun barst þó aldrei.“
Karlarnir og farin frægð.