Það er meira en haf og himinn milli Davíðs Oddssonar og umbjóðenda Sólveigar Önnu Jónsdóttur. Davíð er hálaunamaður. Nokkur hluti launa hans kemur úr almannasjóðum. Eftirlaunakóngur sem nýtur þess að sæta ekki skerðingum eins og öryrkjar og eldri borgarar gera. Em ekki Davíð.
Í Reykjavíkurbréfi morgundagsins heggur eftirlaunakóngurinn að Eflingu:
„Og þá boðar Efling til enn eins delluverkfallsins af því að það félag hefur ekkert tímaskyn eða er veruleikafirrt. Efling atvinnuleysis gæti félagið heitið.“
Ljóst er að ritstjórinn er út á þekju. Eflaust ekki í fyrsta sinn. Barist er fyrir hönd fólks sem nær alls ekki endum saman. Ekkert frekar en rekstur Moggans. Staðan versnar mánuð eftir mánuð.
Víst má telja að Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og hennar fólk truflast ekki af ósmekklegri sendingu Davíðs Oddssonar. Hann er af annari kynslóð og tilheyrir öðrum ellimannaklubbi en flestir aðrir eldri Íslendingar.
-sme