Enn undirstrikast að Moggi Davíðs Oddssonar heillast æ meir að Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni og flokki hans, Miðflokknum. Í leiðara í dag dásamar Davíð umdeilda grein Sigmundar Davíðs, grein sem birtist í Mogganum á laugardag. Gefum Davíð orðið:
„Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, fjallaði um mikilvægt málefni hér í blaðinu á laugardag í grein sem hann nefndi Sumarið 2020 og nýja menningarbyltingin. Í greininni rakti hann vaxandi áhrif pólitísks rétttrúnaðar og þöggunartilburða sem sjást víða um þessar mundir.“
Trúlega hefur aldrei verið svo langt á milli þeirra félaga. Stuðningur Moggans við Miðflokk Sigmundar Davíðs verður eflaust metinn sögulegur þegar frá líður. Jæja, áfram með leiðarann:
„Sigmundur nefndi ýmis sláandi dæmi um þetta, þar sem fólk hefur verið þvingað til að lýsa yfir stuðningi við málstað sem það hafði ekki hugsað sér að lýsa yfir stuðningi við eða þar sem fólk varð fyrir barðinu á rétttrúnaðinum þar sem það gengi ekki nógu langt. Öfgamennirnir láta sér ekki endilega nægja að fólk lýsi yfir stuðningi við þá, það verður um leið að hafna öllu öðru.“
Við lestur þessa kafla skaust í huga minn tilvitnun í hina frábæru mynd, Sódóma Reykjavík. Þar er sagt á einum stað: „Ég geri sko ekki neitt fyrir neinn sem gerir ekki neitt fyrir neinn.“ Þetta var nú útúrdúr.
Að lokum er önnur tilvitnun sem Davíð birtir úr grein Sigmundar Davíðs. Þið lesið ef þið nennið:
„Hann vék einnig að fjölmiðlum sem hann sagði ekki vara varhluta af menningarbyltingunni „og sumir þeirra eru virkir þátttakendur í baráttunni. Ákveðnar sjónvarpsstöðvar gerðu kröfu um að fréttaskýrendur bæru nælu til að sýna stuðning sinn við BLM [Black Lives Matter]. Bandaríska blaðið New York Times sem eitt sinn studdist við kjörorðið „óttalaust og hlutlaust“ (e. without fear or favour) er fyrir löngu orðið áróðursblað og varð loks að grínútgáfu þess sama áróðurs. Þar missti ritstjóri aðsendra greina vinnuna eftir að hann birti grein frá öldungadeildarþingmanni sem taldi rétt að hafa herinn í viðbragðsstöðu vegna óeirða í landinu. Það var ekki síst að kröfu samstarfsfólks sem fór hamförum á Twitter sem maðurinn fór frá. Skömmu síðar sagði kona á sömu deild upp störfum. Hún var þekktur blaðamaður og birti magnaða grein þar sem hún lýsti einelti af hálfu samstarfsmanna og því hvernig NYT væri nú ritstýrt af Twitter. Hún bætti því við að „það ætti ekki að þurfa hugrekki til að mæta í vinnuna á bandarísku dagblaði sem miðjumaður“.“