Spurningin er hve langt er í að þetta ástand birtist okkur á Fróni.
Marinó G. Njálsson skrifaði:
„Danmark lukker ned“ stóð þvert yfir skjáinn á blaðamannafundi Mette Fredriksen, forsætisráðherra Dana, sem hófst kl. 19:30 að íslenskum tíma. Skilaboðin eru skýr. Allir eiga að halda sig heima, sem mögulega geta, skólum, leikskólum/dagvist og menningarstofnunum lokað í tvær vikur. Opinberir starfsmenn sem ekki sinna mikilvægum störfum skulu annað hvort vinna heiman frá sér eða vera í launuðu leyfi.
Fyrir viku sagði ég að Danir væru í afneitun, en þeir hafa vaknað heldur betur til lífsins. Þekktum smittilfellum hefur fjölgað úr 10 í 514 á 7 dögum og þeir sem höfðu áhyggjur af Íslendingum eru búnir að átta sig á, að það voru Danir sem flutu sofandi að feigðarósi.
Viðbrögð almennings eru að hamstra (sem vill svo til að er danskt orð „hamstre“). Biðraðir í matvöruverslunum teygja sig tugi metra og hillur farnar að tæmast.
Spurningin er hve langt er í að þetta ástand birtist okkur á Fróni.
Greinin er fengin af Facebooksíðu Marinós.