Forstjóri starfsmannaleigunnar hafði tekið út af bankareiknungum, án samráðs við starfsmennina.
Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi formaður Rafiðnaðarsambandsins, var árið 2007 dæmdur í Héraðsdómi til að greiða starfsmannaleigu upphæð sem samsvarar í dag um þremur millj. kr. fyrir meiðyrði, langhæsta sekt vegna meiðyrða sem dæmd hafði verið hér á landi.
Guðmundur fjallar um þetta mál á Facebooksíðu sinni:
„Starfsmannaleigan hafði verið staðinn að því að hafa PIN númer og aðrar upplýsingar um bankareikninga starfsmanna sinna. Forstjóri starfsmannaleigunnar hafði tekið út af bankareiknungum, án samráðs við starfsmennina, verulegar upphæðir sem hann kallaði aðspurður að væri vegna húsaleigu og matarpeninga auk þjónustugjöld vegna starfa sem hann veitti hinum erlendu verkamönnum.
Aðspurður gat bankinn ekki svarað hvers vegna utanaðkomandi gæti tekið út af einkareikningum án samþykktar eiganda. Auk framansagðs hafði talsmaður starfsmannaleigunnar tilkynnt verkstjórum á vinnusvæðinu að ef þessir erlendu starfsmenn væru með eitthvað múður ætti að berja þá, þeir væru vanir því. Þetta kom fram í fundargerðum trúnaðarmanna.
Kæra lögmanns starfsmannaleigunnar var reist á ræðu sem ég hafði haldið um starfsmannaleigur á ASÍ þingi og sagði þá m.a. að starfsmannaleigur væru í sama hlutverki og dólgar. Talaði reyndar almennt um þessa starfsemi án þess að nefna nein nöfn.
Heilmikill tími í dómsal fór í spurningar sem beint var til mín hvað orðið Dólgur, þýddi. Ég benti á dólga í umferðinni, flugdólga sem ofurdrukknir legðu undir sig farþegarými. dólga í umræðum eins t.d. stjórnmálamenn sem hrifsuðu til sín orðið á opnum fundum.
Þær flyttu hingað bláfátækt verkafólk og leigði það út á lágmarkstöxtum en hrifsaði til sín drjúgan hluta launa þeirra. Þessi starfsemi samsvaraði mansali og kynlífsþrælkun sem væri í stórkostlegri sókn eftir hrun Sovétríkjanna, sem hafði leitt til þess að hundruð þúsunda atvinnulaust og bláfátækt verkafólk leitaði verstu á bóginn.
Þess ber að geta að Hæstiréttur snéri þessum dóm við og fór fram á það við héraðsdómara hvort vildi ekki vera svo vænn að lesa yfir dómskjölin. Þar kæmi glögglega fram að þau ummæli sem ég var dæmdur fyrir hefði ég aldrei sagt, heldur væru þar um að ræða útlagning fréttamanns á ræðu minni og tilvísunum í fundargerðir.
Nú eru liðin 10 ár og við erum enn á nákvæmlega sama stað, stjórnmálastéttin hefði alltaf vikið sér undan því að taka á þessum ósóma. Verkalýðshreyfingin glímdi reyndar við starfsmannaleigur í Kárahnjúkum 2003 og við í Rafiðnaðarsambandinu glímdum við rússneska starfsmannaleigu árið 1998 vegna lagningar háspennulínu frá Búrfelli. Stjórnmálastéttin setti reyndar í fyrra á laggirnar starfsnefnd til þess að kanna hvort ástæða væri til þess að kanna þessa starfsemi!!“