Dæmdur fyrir að eiga gervibyssu
„Eins og fram er komið játar ákærði innflutning á eftirlíkingum vopna. Skýringar hans á því hvers vegna hann hefði ekki gert grein fyrir þeim eru að engu hafandi,“ segir i dómi Landsréttar.
Að auki var maðurinn ákærður fyrir hótanir á Faceboosíðu:
„Af lestri færslnanna verður ráðið að ákærði hafi ekki verið í andlegu jafnvægi þegar hann setti þær fram og jafnvel í annarlegu ástandi eins og hann sjálfur ýjaði að, en það ýtti eðli máls samkvæmt undir óttann. Höfðu starfsmennirnir fulla ástæðu til að taka hótanirnar alvarlega, eins og raun bar vitni og glögglega kom fram í vitnisburði þeirra fyrir dóminum. Mátti ákærða vera ljóst að líklegt væri að starfsfólk […] fengi vitneskju um hótanirnar og efni þeirra væri slíkt að það væri til þess fallið að valda mikilli hræðslu á meðal þeirra.“
„Ákærði, Ingvar Árni Ingvarsson, sæti fangelsi í 60 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð. Ákærði sæti upptöku ásjö ampúlum af lyfinu HCG-M 5000, einu stk. skammbyssu af gerðinni Zorak Mod 918, einu stk riffli, einu stk. magasíni ætluðu fyrir riffil, einu stk. piparúða 80 ml af gerðinni Manergy pepper spray, einu stk. piparúða 50 ml af gerðinni Manergy pepper spray og sjö pökkum af skotfærum af gerðinni Fiocchi 9 mm P.A. Knall Nick (samtals 350 stk.).Ákærði greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Steinbergs Finnbogasonar lögmanns, 527.000 krónur.“