Gunnar Smári skrifar:
Ég hef séð pósta með vísun í sænskar tölur sem eiga að sýna fram á covid sé ekki banvænna en meðal kvef. Ég pósta því hér tölum yfir fjölda látinna í New York-fylki eftir dánarorsök. Nú eru 22 dagar síðan þrír dóu sama daginn í fylkinu vegna covid. Ef við umreiknum dánartíðnina í venjulegu ári yfir á þetta tímabil þá væri listinn svona:
Dauðsföll á 22 dögum:
- Covid: 6.898
- Hjartasjúkdómar: 2.658
- Krabbamein: 2.107
- Slys: 463
- Langvinnir öndunarfærasjúkdómar: 437
- Slag: 378
- Flensa/lungnabólga: 272
- Sykursýki: 252
- Alzheimer: 212
- Hár blóðþrýstingur: 163
- Sýklasótt (blóðeitrun): 138
- Og aðrar orsakir:
- Byssumorð: 47
- Sjálfsmorð: 35
- Ofskammtar af lyfjum eða fíkniefnum: 236
Samkvæmt þessu er covid skæðara en allt þetta til samans: Hjartasjúkdómar, krabbamein, slysfarir, langvinnir öndunarfærasjúkdómar, slag, árleg flensa/lungnabólga, ofskammtar af lyfjum eða fíkniefnum, sykursýki, byssumorð, sjálfsmorð.