Mogginn gengur erinda hinnar herskáu forystu Samtaka atvinnulífsins í baráttu gegn launafólki. Einn leikjanna er gegn forystu launafólks. Ritstjóri Moggans skrifar í leiðara dagsins:
„Nú vita allir nema mestu óvitar að margt er efnahagslega óhagstætt nú og er kórónuveiran og viðbrögðin við henni efst á blaði, en fleira kemur til,“ þarna er verið að efast um dómgreind forystufólks launafólks.
Það fer í fínustu taugar sumra að launafólk vilji falla frá áunnum launahækkunum. Mogginn segir: „Höfnun óska um að halda launum óbreyttum um sinn er í raun tillaga þeirra um að fækka vinnandi fólki hjá fyrirtækjum svo að þau geti áfram staðið undir launagreiðslum.“
Í leiðaranum er sparkað í átt að forystufólkinu. Það er fólk meira að segja sakað um skort á ábyrgð og eitthvað fleira misjafnt. Án þess að það sé skýrt. Dæmi:
„En það gerist enn að ábyrgðarskertir aðilar komist um hríð inn fyrir vébönd verkalýðshreyfinga með því að nýta sér áhugaleysi félagsmanna á innri málum. Og þegar þeir hafa komið sér fyrir á kontórunum þá rennur upp fyrir þeim hið ógnarlega vald sem þar er.“
Mogginn kallaði Gylfa Arnbjörnsson til og svo skrifar ritstjórinn enn eina lummuna í baráttunni gegn nýrri forystu launafólks. Hversu mikið bit er í þeim vinum er óvíst. Trúlega frekar lítið.
-sme