Breytingar á sköttum og skattmati um áramót hafa áhrif á launagreiðslur og styrki úr sjóðum stéttarfélaga. Í ár ætti fólk að skoða sérstaklega hækkun á frádráttarbærum styrkjum vegna íþróttaiðkunar, breytingar á skattmati styrkja til endurhæfingar og hækkun persónuafsláttar.
Styrkir úr sjóðum stéttarfélaga vegna íþróttaiðkunar og annarrar heilsuræktar eru undanþegnir staðgreiðsluskyldu upp að vissu hámarki og hækkaði hámarkið nú um áramótin í 55 þúsund á ári. Sömuleiðis var reglum um styrki vegna endurhæfingar breytt þannig að þeir eru ekki lengur undanþegnir staðgreiðslu á sama hátt og styrkir vegna íþróttaiðkunar.
Þá hækkaði persónuafsláttur úr 50.498 í 50.902 og viðmiðunarupphæðir skattþrepa hækkuðu líka.
Sjá frétt um þetta t.d á vef Verzlunarmannafélags Reykjavíkur.