Borgin vísar börnum skuldugra á dyr
Tugir barna mega búa við útilokun vegna skulda foreldra við Reykjavíkurborg. Sanna Magdalena Mörtudóttur Sósíalistaflokki lagði fram fyrirspurn um þetta efni. Hún bókaði:
„Í svari fjármála- og áhættustýringarsviðs við fyrirspurn vegna fjölda þeirra sem ekki njóta þjónustu frá Reykjavíkurborg eða fyrirtækja í eigu hennar vegna vanskila kemur fram að lokað hafi verið fyrir rafmagn hjá átta einstaklingum, miðað við stöðuna þann 22. júní sl. Rafmagnsleysi á heimili veldur miklum óþægindum og erfiðleikum sama hver á í hlut. Er vitað hvort hér hafi verið um barnafjölskyldur að ræða sem voru án rafmagns? Er um fjölgun á milli ára að ræða eða er þetta svipuð staða miðað við síðustu 3 ár t.d.? Í svarbréfi kemur einnig fram að þann 22. júní sl. voru 39 í uppsagnarferli, samkvæmt skóla- og frístundasviði er þetta fjölgun á milli ára eða er um svipaða stöðu að ræða, sé litið til síðustu þriggja ára? Samkvæmt svarbréfi kom fram að núverandi staða væri sú að foreldrar/forráðamenn átta barna sem hafi fengið boð um leikskólavistun í haust þurfa að ganga frá vanskilum leikskólagjalda eða semja um þau svo að barnið fái notið þjónustunnar. Einnig fengu foreldrar sjö barna ítrekun á uppsögn og höfðu frest til næstu mánaðamóta til að ganga frá vanskilum. Í þeim tilfellum höfðu foreldrar áður fengið uppsögn, gert samning og ekki staðið við þann samning. Er það breyting á milli ára (sé litið til síðustu þriggja ára, eða er um svipaða stöðu að ræða?).“
Sanna Magdalena var ekki hætt:
„Verklagsreglur borgarinnar vegna vanskila foreldra/forsjármanna varðandi þjónustu við börn miða að því að tryggja að börn verði ekki af nauðsynlegri grunnþjónustu vegna erfiðrar fjárhagsstöðu eða skuldavanda foreldra. Í verklagsreglum kemur fram að forsenda þess að uppsögn sé frestað er að skuldari panti viðtal hjá félagsráðgjafa á þjónustumiðstöð. Skuldari fær staðfestingu um viðtalsbókun hjá þjónustumiðstöð til þess að virkja frest á uppsögn hjá innheimtustjóra. Á viðtalsdegi lætur félagsráðgjafi innheimtustjóra vita ef skuldari hefur mætt í bókað viðtal og undirritað upplýst samþykki fyrir samstarfi velferðarsviðs og skóla- og frístundsviðs um aðstoð honum til handa. Mæti skuldari ekki í viðtalið virkjast uppsögnin aftur. Fyrirspurn mín er sú: Getur foreldri/forsjármaður óskað eftir viðtali utan hefðbundins opnunartíma þjónustumiðstöðva? Á heimasíðu Reykjavíkurborgar kemur fram að þær séu opnar frá 08:30- 15:00 en þá eru margir foreldrar/forsjármenn vinnandi.“