Forsvarsmenn Icelandair hótela hafa tekið ákvörðun um að greiða starfsfólki sem var á frívakt verkfallsdagana 8. og 22. mars laun fyrir umrædda daga í ljósi þess að Efling og VR ætla ekki að greiða starfsfólki á frívakt launamissi. Greint hafði verið frá því að Icelandair hótel hefðu dregið laun af öllu því starfsfólki sem ynni störf sem féllu undir verkfallsaðgerðir stéttarfélaga í mars óháð því hvort það hefði verið á vakt þá daga sem aðgerðirnar stóðu yfir. Efling fordæmdi ákvörðunina harðlega og skoraði á hótelkeðjuna að leiðrétta mistökin. „Við hörmum framgöngu forsvarsmanna Eflingar í fjölmiðlum, enda er hún í þversögn við yfirlýstar sáttaumleitanir þeirra við þau fyrirtæki sem verkfallið náði til,“ sagði í tilkynningu Magneu Þóreyjar Hjálmarsdóttur framkvæmdastjóra til starfsólks í gær.