Ekki er birtunni fyrir að fara í ráðuneyti Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur. Viljug eða ekki stökk hún fram til að leiðrétta það sem Lilja Alfreðsdóttir hafði sagt um hugsanlegar takmarkanir á ferðafrelsi.
Sá munur er augljós milli þeirra að Lilja situr í efnahagsráði en ekki Þórdís Kolbrún ekki. Í ráðinu sitja þrír ráðherrar. Aðrir ekki. Bjarni Benediktsson, Katrín Jakobsdóttir og Lilja. Þar er eflaust margt rætt og margt hugsað. Í hljóði og í þögn. Var Lilja ekki bara að enduróma spekilasjónir úr efnahagsráðinu. Það held ég.
Jæja Þórdís Kolbrún hefur mýkst í gagnrýni sinni í garð Lilju. Kannski eftir viðtal við Bjarna. Það er aldrei að vita. Enn er samt þungskýjað í ráðuneyti Þórdísar Kolbrúnar. Blindaþoka alveg hreint.
Þórdís Kolbrún skrifar á Facebook: „Þessi ummæli hafa skiljanlega vakið alvarlegar spurningar, ekki síst innan ferðaþjónustunnar þar sem mjög alvarleg staða er uppi nú þegar. Að gefnu tilefni finnst mér mikilvægt að það komi fram að það hefur engin ákvörðun verið tekin um þetta enda yrði slík meiriháttar stefnubreyting alltaf kynnt með formlegum og viðeigandi hætti.“
Ef rýnt er í þokuna sést að ákvörðun hafi ekki veri tekin. Eftir stendur að það kunni að standa til. Það er að ferðafrelsi verði ekkert fyrr en bóluefni finnst við veirunni skaðlegu. Meðan ekki koma skýrar svör stendur eftir að til standi að herða á ferðafrelsi, til og frá Íslandi.
-sme