Þjóðgarðurinn, hið stóra mál Vinstri grænna, verður ekki að veruleika. Hann var eitt helsta mál Vg þegar ríkisstjórnin var mynduð. Í stjórnarsáttmálanum segir: „Stofnaður verður þjóðgarður á miðhálendinu í samráði þverpólitískrar þingmannanefndar, umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, sveitarfélaga, náttúruverndar- og útivistarsamtaka og annarra hagsmunaaðila. Skoðaðir verða möguleikar á þjóðgörðum á öðrum svæðum.“
Undir þetta kvittuðu bæði Sjálfstæðisflokkur og Framsókn. Engir fyrirvarar. Ekkert.
„En af því að hugmyndin í heild sinni er heillandi en hún er svo stór að hún þarf einfaldlega meira samtal í samfélaginu. Mér finnst það ekki vera tap nokkurs að það sé ekki hægt að framkvæma það á einu kjörtímabili. Í raun og veru er þetta það stórt verkefni að það þarf lengri aðdraganda.“ Þetta sagði víst Sigurður Ingi Jóhannsson í Víglínunni í gær.
Á Alþingi sagði varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Þórdís Kolbrún: „Það er mín persónulega skoðun að mér fyndist allt í lagi að hugsa, í ljósi umræðu um málið, hvort það sé möguleiki að taka fleiri skref en smærri.“
Ljóst er að hvorki Sjálfstæðisflokki né Framsókn var nein alvara um stofnun þjóðgarðar á miðhálendi Íslands. Undirskrift þeirra var markleysa. Blekking?
Í stefnu flokks Katrínar segir: „Þjóðgarður á hálendinu stuðlar að verndun víðerna, náttúrufars, jarðminja auk menningar og sögu. Friðlýsa þarf hálendi Vestfjarða og umhverfi Breiðafjarðar og stofna þar þjóðgarða.“
-sme