Í Reykjavík kemur fyrir að skólar sendi börnin heim forfallist kennarar. Ekki er nægum peningum varið í forfallakennslu og eina ráð skólastjórnenda er þá að vísa börnum heim þegar peningarnir eru uppurnir.
Þetta er staðreynd. Örn Þórðarson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, segir í Mogganum í dag: „Það er gert þó að skólaskylda sé og lögboðið að nemendur fái forfallakennslu í veikindum kennara sinna. Ástandið er því grafalvarlegt í skólakerfinu.“
Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, segir í Mogganum, vandann vera tvíþættan. Annars vegar dugi fjármagn ekki en hins vegar geti reynst erfitt að manna forfallakennslu.
„Almennt má segja að skólar fái fjárveitingar til að standa straum af kostnaði vegna forfallakennslu í skammtímaveikindum. Það er fjárveiting sem nær yfir allt árið. Það geta komið upp tilvik þar sem sú fjárveiting dugar ekki til að mæta kostnaði vegna veikinda,“ segir Helgi.