„Þarna var verið að selja eigur ríkisins til sérvalinna aðila. Ekki var reynt að hámarka söluverðið og því er þetta mál álitshnekkir fyrir stjórn Lindarhvols,“ segir Sigurður Valtýsson, í samtali við Markaðinn. Ekki er ástæða til að efast. Það verður spennandi að sjá hvað leynist í bókum Lindarhvols, þegar tjöldin verða dregin frá.
Meira af blaðsíðu tvö:
„Mikið tap GAMMA á tímabilinu kemur til vegna endurmats á stöðu fagfjárfestasjóðanna GAMMA: Novus og GAMMA: Anglia, sem reyndist mun verri en áður var talið eins og greint var frá í september í fyrra, en áður hafði stjórn félagsins undirritað árshlutareikning þar sem fram kom að hagnaður GAMMA á fyrri árshelmingi hefði verið um 46 milljónir. Við leiðréttingu á afkomu GAMMA lækkaði eigið fé félagsins um 437 milljónir króna – úr 1.973 milljónum í 1.536 milljónir.“
Snillingar allir hreint.