Ragnar Þór Ingólfsson skrifaði:
„Hvernig stendur á því að blaðasnápar
sérhagsmunamiðla og Seðlabankastjóri komist ítrekað upp með að halda því fram
að ekki gangi að raunstýrivextir séu neikvæðir. Staðreyndin er sú að
raunstýrivextir hafa verið meira og minna neikvæðir í samanburðarlöndum
síðastliðin 10 ár.
Þrátt fyrir að stýrivextir hafi hækkað mun minna
í sömu löndum í álíka verðbólgu og á Íslandi þá gengur þessum löndum mun betur
en okkur að lækka verðbólgu. Þessari óstjórn peningastefnu Seðlabankans verður
að linna ef ekki á illa að fara.“