Björt og þjóðgarðsvörður loka Silfru
„Fréttir af enn einu andlátinu við Silfru er þyngri en tárum tekur. Ég, ásamt þjóðgarðsverði og öðrum stofnunum, hef ákveðið að loka svæðinu og láta gera útekt og áætlun um öryggi þeirra ferðamanna sem hana sækja,“ skrifar Björt Ólafsdóttir umhverfisráðherra á Facebook rétt í þessu.
Bandaríkjamaður á sjötugsaldri lést þegar hann var að snorka í Silfru á Þingvöllum síðdegis í dag. Hann var fluttur með þyrlu frá Landhelgisgæslunni á Landspítalann þar sem læknar úrskurðuðu hann látinn.