Fjölmiðlamaðurinn Björn Ingi Hrafnsson upplifir merk tímamót í dag en það eru þrjú ár síðan hann ákvað að hætta að drekka. Hann segir frá þv´í á Facebook:
„Þrjú ár frá því ég bragðaði síðast áfengi. Þannig mjakast þetta, en risaskrefin felast í betri heilsu og heilbrigðara gildismati.
Mæli með þessu fyrir alla sem vilja vera meira til staðar fyrir það sem mestu máli skiptir og ná stjórn á eigin lífi. Það er aldrei of seint að horfast í augu við sjálfan sig og besta ákvörðun sem hægt er að taka. Með Guðs hjálp og góðra manna.“