- Advertisement -

Bjarni: WOW hefur haft mikið að segja

„Ég held að það sé öllum ljóst t.d. að þessi mikla útvíkkun á starfsemi Wow, sem kostar greinilega mikið fjármagn sem þeir eru að reyna að sækja sér núna, hefur haft mikið að segja. Það var engin stjórnvaldsákvörðun þar að baki,“ sagði Bjarni Benediktsson í ræðustól Alþingis þar sem hann meðal annars mótmælti að efnahagur íslenska ríkisins hafi að mestu orðið til fyrir heppni.

„Við erum alltaf að fá ókeypis vinninga, Íslendingar. Mér finnst það alveg ótrúlega mikil einföldun á stöðunni. Þetta verkar allt saman. Staðan væri ekki svona góð bara vegna ferðaþjónustunnar. Það þarf að verka hvað með öðru í hagkerfinu,“ sagði hann.

Hann sagði með aukinni ferðaþjónustu hafi þurft ýmislegt til.

„Hins vegar má segja að við höfum haft innviði t.d. í Keflavík og við höfum haft fyrirtæki eins og Isavia, opinber fyrirtæki, sem hafa haft getu og burði til þess að byggja upp flugstöðina í samræmi við aukna eftirspurn. Að því leytinu til höfum við verið reiðubúin.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Hvernig sem við horfum á þetta, sem einhvers konar tilviljun eða hvort við höfum einfaldlega skapað almennu ytri skilyrðin og smám saman verið að ýta undir Ísland sem ákjósanlegan ferðamannastað, þá er alla vega eitt alveg víst; hagkerfið eins og það er með sterkri ferðaþjónustu í landinu er miklu sterkara hagkerfi. Það er fjölbreyttara, það þolir betur áföll og það skapar meiri verðmæti. Landsframleiðsla á mann hefur aldrei verið meiri en er í dag. Það er ástæðan fyrir því að ég segi í dag að við höfum aldrei staðið sterkar,“ sagði Bjarni ráðherra.

Hlutui leiðarans sem Bjarni vitnar til.

Í netfærslu vitnar Bjarni til tæplega 40 ára gamals leiðara í Mogganum þar sem flugmálayfirvöld í Luxemborg felldu niður lendingargjöld Loftleiða.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: