Nú keppast hinir þessir við að útiloka aðra eða að útiloka enga. Bjarni Benediktsson skrifar ekki skýra grein þar sem hann segir:
„Leiðin til vaxtar og fleiri starfa getur aldrei verið grundvölluð á því að stækka ríkisreksturinn eða að flækja landinu í aðildarviðræður við ESB. Við endurheimtum ekki töpuð störf í einkageiranum með því að auka álögur.“
Hann er klárlega að útiloka Evrópusambandið. Og þá um leið Viðreisn og Samfylkingu? Samfylkingin hefur útilokað Bjarna og hans flokk en Viðreisn alls ekki. Leikar æsast.