„Nú er að hefjast það sem kannski má kalla „pólitíska tilraunastarfsemi“ innan Sjálfstæðisflokksins. Jón Kári Jónsson, formaður Félags sjálfstæðismanna í Hlíða- og Holtahverfi, hefur tekið frumkvæði að því að láta reyna á ný ákvæði í skipulagsreglum Sjálfstæðisflokksins.“
Þannig skrifar Styrmir Gunnarsson í Mogga dagsins sem dreift var í gær. Styrmir, sem fleiri flokksfélagar, var bjartsýnn um árangur af undirskriftasöfnuninni. Sjálfur sagði Jón Kári, í fréttum Sjónvarpsins í gærkvöld, að söfnunin gengi vel.
Gunnar Smári sá fréttatímann og skrifaði að honum loknum: „Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, um mögulega almenna kosningu meðal félagsmanna í flokknum hans: „Það liggur alveg fyrir að það væri aldrei nema ráðgefandi kosning þannig að ég sé ekki að það breyti neinu.“ Formaður sem talar svona um félagsmenn mun á endanum fá að kenna á valdi félagsmanna, á endanum ráða þeir.“
Guðmundur Hörður Guðmundsson, fyrrverandi formaður Landverndar, skrifaði um þetta: „Formenn sem tala svona til eigin flokksmanna eru komnir á furðulegan stað.“
Gunnar Smári bætti við: „Já, þetta er eiginlega það hrokafyllsta sem ég hef heyrt.“
Þegar Styrmri skrifaði eftirfarandi gat hann ekki vitað að Bjarni sagðist ófeiminn ekki ætla að virða vilja flokksmanna, sama hversu margir vilja atkvæðagreiðsluna:
„Þeir, sem eru flokksbundnir í Sjálfstæðisflokknum eru hér með hvattir til þess að taka þátt í þeirri undirskriftasöfnun sem Jón Kári Jónsson, formaður Félags sjálfstæðismanna í Hlíða- og Holtahverfi, hefur sett af stað. Hún getur valdið þáttaskilum í starfi allra stjórnmálaflokka hér.“