Bjarni Benediktsson hótar, í viðtali við Moggann í dag, að verði samið í komandi kjarasamningum á annan veg en hann helst kýs, að þá hætti hann við boðaðar lækknanir á tekjuskatti og þess í stað segist hann ætla að hækka skattana, ekki lækka.
Víst er að Bjarni einn ræður hvort verður, skattahækkanir eða skattalækkanir. Samstarfsflokkarnir í ríkisstjórninni munu eflaust ekkert hafa um það að segja.
Bjarni segir til dæmis í Mogganum:
„Við þurfum að fara að snúa umræðunni á Íslandi upp í það fyrir hvaða launahækkunum er svigrúm í hagkerfinu. Ef launahækkanir eru langt umfram það svigrúm sem er sannarlega til staðar í hagkerfinu fer að vera mikið vafamál hvort stjórnvöld gera rétt í því að fylgja eftir áformum um lækkanir á tekjuskatti einstaklinga. Við höfum boðað skattalækkanir í þágu þeirra sem eru í neðra þrepinu, lægri- og millitekjuhópunum, en það er óskynsamlegt að fylgja því eftir ef kjarasamningar fara úr böndunum og menn eru að taka út meira en innistæða er fyrir. Þá þarf að huga mjög vel að tímasetningu slíkra aðgerða. Þær eru hugsaðar til að greiða fyrir samningum en ekki til að greiða fyrir óábyrgum samningum. Þetta gæti verið óskynsamlegt að gera ef Seðlabankinn væri á sama tíma að draga úr spennu í hagkerfinu með hækkun vaxta.“
Ekki fer á milli mála að Bjarna er alvara. Fari samningar á anna hátt en hann vill segir hann launafólk eiga eftir að finna til tevatnsins. Eflaust mun sumu fólki Bjarni efna til ófriðar með hótunum gegn launafólki.
Það er ekki bara launafólk á almennum markaði sem Bjarni hefur í hótunum við. Bjarni bendir ríkisstarfsmönnum á að ríkissjóður hafi ekkert svigrúm til launahækkana.
Björgvin Guðmundsson hefur verið duglegastur allra til að benda á launagjána í samfélaginu, sem stækkaði mikið vegna launahækkana til handa Bjarna og öðrum í „hálaunaelútunni“.
Hér eru skrif Björgvins frá því gær.
Gífurlegar launahækkanir þingmanna