- Advertisement -

Bjarni er með krumlurnar í þessu öllu

„Bjarni veit alveg að ef ekki væri búið að rústa öllum stofnunum, eftirliti og siðferðisviðmiðum þá væri hann auðvitað ekki ráðherra.“

„Hef aðeins minnst á hvernig menn vopna sig vanhæfni í bæði Íslandsbankamálinu og svo auðvitað Lindarhvoll. Þegar fjármálaráðherra segist ekki hafa lesið plagg sem hann hefur haldið leyndu í hálfan áratug þá er ráðherra að vopna sig vanhæfni – auðvitað hefur hann lesið þetta því annað væri auðvitað gáleysi af hálfu ráðherra og brot á ráðherraábyrgð,“ skrifar Atli Þór Fanndal.

„Bjarni er bara að láta eins og þetta sé ekki yfirhylming sem er spilling heldur bara vanhæfur vitleysingur sem nennir ekki einu sinni að lesa. Mest er þetta þó bara stælar í einhverju pakki sem er alltaf með leiðindi. Raunar er kannski bara um stórglæsilegan árangur að ræða að mati Bjarna. Bjarni veit alveg að ef ekki væri búið að rústa öllum stofnunum, eftirliti og siðferðisviðmiðum þá væri hann auðvitað ekki ráðherra. Hann er með krumlurnar í þessu öllu. Það er beinlínis hans pólitík að réttu strákarnir fái að spila með eigur almennings. Það er það sem gerðist.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: