Sigurjón Magnús Egilsson skrifar:
Mogginn hefur jafnvel bjargað Bjarna fyrir horn. Hann kemur uppistandandi sem formaður af fundi dagsins. Þrátt fyrir einstakt getuleysi við að stjórna eigin málaflokki.
Bjarni efnahagsmálaráðherra mætir flokksfólki sínu á hallelújafundi í dag. Mogginn gerðist tindátar Bjarna. Hafa lofað hann og prísað í síðustu daga. Efnahgsmálaráðherrann hefur notað blaðið til að lýsa alla aðra en sig seka af einstaklega lélegri efnahagsstjórn.
Skoðum aðeins:
„Seðlabankinn verður að spyrja sig hvort hann hafi náð, í gegnum þessar miklu sviptingar sem orðið hafa, að viðhalda trúverðugleika sínum […] Mér finnst mjög skýrt sagt að bankinn tali ekki nægilega skýrt um að hann hafi tól sem hann ætli að nota og muni virka. Þegar bankinn vísar ábyrgðinni á vaxtahækkunum á einhverja aðra aðila í hagkerfinu þá er það ekki til þess að auka mjög trú mína eða annarra held ég á því að bankinn trúi því sjálfur að tólin hans virki til þess að ná árangri.“ Þetta sagði Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra í viðtali í Dagmálum sem birt hafa verið á mbl.is.
Flokksráð flokksins kemur saman í dag. Mogginn hefur þess vegna birt brosmyndir af Bjarna þar sem hann boðar fullkomlega innihaldslausar tillögur um niðurskurð. Þrátt fyrir einstaka heppni Bjarna, þar sem milljarðatugir streyma í ríkiskassann, boðar Bjarni ekkert til varnar heimilum sem eru að sökkva vegna slakrar efnahagsstjórnar ríkisstjórnarinnar, þar sem Bjarni er í aðalhlutverki
Mogginn hefur jafnvel bjargað Bjarna fyrir horn. Hann kemur uppistandandi sem formaður af fundi dagsins. Þrátt fyrir einstakt getuleysi við að stjórna eigin málaflokki.
Fundarfólk dagsins mun éta drullukökuna hans Bjarna og Moggans.