- Advertisement -

Bjarkey hafnaði Jóni Gunnarssyni

Á þessum fundi gerðist það helst markvert að Ísland sagði skilið við þann ríkjahóp sem staðið hefur saman að því að verja sjálfsákvörðunarrétt þjóða til sjálfbærrar nýtingar á náttúruauðlindum sínum.

Jón Gunnarsson.
Hér er Jón með íslensku sendinefndinni. Ráðherrann hafnaði óskum hans um að fá að vera í nefndinni.

Stjórnmál „Hér er ég með sendinefnd Íslands á fundi Alþjóða hvalveiðiráðsins sem haldinn er þessa dagana. Í nefndinni eru Kolbeinn Árnason formaður frá Matvælaráðuneyti, Þorvarður Atli Þórsson frá Utanríkisráðuneyti, Guðjón Már Sigurðsson frá Hafrannsóknarstofnun, Kristján Loftsson og Sigursteinn Másson frá hagsmunaaðilum. Ég laumaði mér með þeim á myndina en er ekki í sendinefndinni,“ skrifar Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Facebook.

„Ég hafði óskað eftir því, við matvælaráðherra, að fá aðgang að fundinum í gegnum sendinefnd okkar. Ég greiði sjálfur allan kostnað við ferðina en hún af kærleik sínum hafnaði beiðni minni. En alþjóðleg samtök um sjálfbæra nýtingu sem verið hafa á þessum fundi í áratugi voru mjög sátt við að þingmaðurinn fengi aðgang á þeirra vegum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Á þessum fundi gerðist það helst markvert að Ísland sagði skilið við þann ríkjahóp sem staðið hefur saman að því að verja sjálfsákvörðunarrétt þjóða til sjálfbærrar nýtingar á náttúruauðlindum sínum. Það var gert að fyrirmælum matvælaráðherra í andstöðu við forystumenn samstarfsflokkanna í ríkisstjórn. Þetta eru á þessum vettvangi tímamót í utanríkisstefnu Íslands,“ skrifaði Jón og ljóst er að Sjöllunum er misboðið að Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hafi hafnað Jóni Gunnarssyni.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: