Davíð ver leiðara dagsins til að berjast gegn veiðileyfagjöldum. Púðurskot sem breytir engu. Einungis til heimabrúks. Og varla það. Yfirskrift leiðarans er „Lýðskrumarar“.
Sýnilegt er að Davíð reynir að fæla fólk frá gagnrýni á sjávarútveg. Í lok leiðarans segir:
„Þrátt fyrir þennan ofurskatt reyna lýðskrumarar nú eina ferðina enn að ráðast gegn þessari undirstöðuatvinnugrein þjóðarinnar og nota til þess ömurlegt mál í fjarlægu landi. Ætlunin virðist vera að hækka skatta á greinina og helst að bylta fiskveiðistjórnarkerfinu, kerfi sem hefur tryggt stöðugleika og uppbyggingu í sjávarútvegi, kerfi sem hefur tryggt að útvegurinn hér á landi hefur getað staðið undir ofursköttum á sama tíma og keppinautarnir erlendis búa við ríkisstyrki.
Mikilvægt er að botn fáist í það mál sem upp kom í Namibíu en það þarf að gerast í réttarkerfinu en ekki með aftökum án dóms og laga. Ekki er síður mikilvægt að lýðskrumarar gæti sín áður en þeir hafa valdið þjóðinni mun meira tjóni með óábyrgu framferði sínu en þetta tiltekna mál gat nokkru sinni gert án þeirra atbeina.“